![]() |
|
|
|
Laugardagurinn 6. sept Lillý, Kristbjörg, Hildur ( held ég) og Silja fóru saman í morgun.. Guðbjörg fór líka en ég er ekki með allar vegalengdir á hreinu. Þið bara póstið það inn sjálf í komments. ég fór ekki ákvað að taka crossfit framyfir. SAkna nú samt að fá ekki fleiri karlmannsnöfn í póstinn.
30 Jább það voru 4 konur mættar á fund í morgun. Dandý, Kibba, Ólöf og Guðbjörg. Tjörvi bættist svo í hópinn rétt áður en lagt var í hann. Dandý og Guðbjörg fóru á malbikið, en Tjörvi, Kibba og Ólöf í skóginn þar sem Keli bættist í hópinn. Ólöf mun senda okkur hugmyndir í pósti um tíma skokkhóps í vetur. Endilega verið dugleg að kommenta ykkur inn ef þið komist ekki á þeim tímum. Klemm og koss. Dandý
Laug 20 ágúst Hæbbs. laugardaginn 20 ágúst voru Keli Dandý og Jón Gunnar í skóginum. Guðbjörg- Kristbjörg - Edda í Glitni og Óli Sala vor þá að hita upp fyrir Reykjavíkurmaraþon ( Glitnis ) þar sem þau stóðu sig með prýði og héldu coolinu alla leið. Til lukku með árangurinn. Hlakka til að sjá ykkur öll kl 9 í fyrramálið
9. ágúst Vorum mættir kl: 9:00 Jón Gunnar og Sigurður Álfgeir og hlupum einn hring í skóginum. Ljómandi gott veður og frábært að eiga þennan stað til að hlaupa. Bestu kveðjur, Jón Gunnar
Laugardagurinn 19 júlí Aumingja Óli var einmana í skóginum, eins gott að hann var ekki étinn af öðru dýri. Kibba og Tjörvi fóru þennan dag -Tjörvi 13 en Kibba 21. Dandý og Keli fóru saman, Keli tvo en Dandý skellti sér 14 km. Við erum öll svo dugleg, en ekki allir að hlaupa alltaf á sama tíma. Gangi ykkur vel sem farið í Jökulsárhlaupið, Fáskrúðsfjarðarhlaupið og allt það sem er í gangi næstu 3 vikurnar. Kveðja Dandý . Ef einhver vill hlaupa með mér einhverntímann á morgun - mánudaginn 22. júlí þá er ég með síma 892 4949. plís.
Miðvikudagurinn16. júli Vorum mættir kl: 18:30 Jón Gunnar og Óli Sala. Mættum á leiðinni Guðbjörgu, Kristbjörgu og Lollu. Jón fór einn hring og ætla ég að æfa inni í sal næstu 3-4 vikurnar, lyfta og hlaupa á bretti o.s.frv.. Óli fór fjóra hringi og Guðbjörg, Kristbjörg og Lolla sennilega eitthvað álíka. Var farinn sko.... Kveðja, Jón Gunnar
mánudagur 14. júlí Kibba, Dandý og Óli skokkuðu í dag. Örugglega fleiri en við hittumst á þessum dýrðar degi. Dandý fór tvo, Kibba fór þrjá og Óli er örugglega enn að hlaupa... Góða nótt englar og fólk.
Laugardagurinn 12 Mættum kl: 9:00 Dandý, Óli Sala og Jón Gunnar, karlarnir hlupu tvo hringi en Dandý sennilega eitthvað meira. Svo er bara að mæta á mánudag kl: 18:30 Bestu kveðjur, Jón Gunnar
Miðvikudagurinn 9. júni Kl: 18:30 var Jón Gunnar mættur. Á hlaupum mætti hann Kristbjörgu og Óla Sala sem voru á sínum öðrum og fjörða hring. Minni aftur á Jökulsárhlaup 26 júli, það er víst mjög falleg hlaupaleið. Kveðja, Jón Gunnar
Síðustu dagar Laugardaginn kl 9:00 hlupum við Óli Sala, Jón fór einn hring en Óli hljóp 20 km. Kveðja, Jón Gunnar
|